FULLVALDA

Það er aðeins undir þér komið að skapa hamingjuna í þínu lífi. Ég vil fylgja þér á leiðinni.

FULLVALDA RETREAT

“Until you make the unconscious conscious, it will direct your life and you will call it fate.”

Það eru magnaðir hlutir sem gerast þegar við kúplum okkur almennilega út úr hversdagsleikanum og gefum okkur dýrmætan tíma til að vera við sjálf í töfrandi umhverfi með æðislegu fólki. 

Þegar þú ert komin nær því að vera með svörin um hvert þú vilt fara (eða bara hvað þú vilt ekki lengur!) en veist ekki hvað er næsta skrefið á leiðinni eða hvaða ómeðvituðu hindranir eru á leiðinni. FULLVALDA retreat gefur þér sterkari tengingu við þig og skýrari sýn á það hvað hefur staðið í vegi fyrir þér og hvernig þú raunverulega skapar það líf sem þú vilt. 

Það er tækifæri til að uppgötva og prófa nýjar hliðar á okkur sjálfum, stíga inn í nýja drauma og skilja eftir gamlar og úreltar útgáfur af okkur sjálfum.

Á þessum griðarstað í fjöllunum á Suður-Spáni vil ég bjóða þér að endurnæra þig á nýjan hátt, styrkja tenginguna við innsæið, leikgleðina og kynorkuna til að þú getir stígið næstu skref í að skapa þitt besta líf.

…og hrista af þér gömul mynstur sem eru ekkert að gera neitt gagn lengur!

Ég leiði þig til að styrkja þitt innra öryggi með þér, finna leikgleðina þína og heiðra kynorkuna þín til að þú getir lifað þínu lífi í sannleika og ást. Ég hjálpa þér að sleppa takinu af þeim munstrum sem halda þér föstum og skapa ný sem þjóna þér betur.

Hafðu samband núna til að skrá þig á næsta retreat, júní 2024.

ÞEGAR ÞÚ SPEGLAR ÞIG Í NÝJU FÓLKI SÉRÐU ÞIG Á NÝJAN HÁTT

“Það sem stóð mest uppúr hjá mér var að kynnast öðrum dásamlegum sálum sem eru á sömu bylgjulengd og ég”

Þegar þú mætir í nýjan hóp af fólki færðu tækifæri til að vera nákvæmlega þú eins og þú ert akkúrat núna. Ekki að spila eitthvað hlutverk sem þú ert vön að gera eða eins og aðrir ætlast til að þú sért.

Einfaldlega þú. Það er töfrandi að vera samankomin langt frá heima í leit að okkar sanna sjálfi. Vertu velkomin með.

FULLVALDA ÞÚ

Hver vegur að heiman er vegurinn heim.

Eftir viku í retreatinu muntu finna að þú hafir lifnað við og endurnýjað tenginguna við þig. Tómleikinn og ófriðurinn innra með þér hefur stórminnkað ef ekki alveg horfið og í staðinn er gleði og spenna fyrir lífinu. Þú finnur tengingu við líkamann þinn, innsæið þitt og aðrar yndislegar konur sem voru í sama ferðalagi. Sálufélagar á einstakri ferð. Í þér býr nú öryggi um hver þín næstu skref eru, hjarta fullt af ást og hugrekki og áttavitinn rétt stilltur fyrir lífið.

“Algjörlega ný manneskja á líkama og sál. Mér þykir mun vænna um sjálfa mig og tek ákvarðanir út frá því hvað varðar mataræði, hreyfingu ofl.”

Einfalda gjöfin í því að vera umkringd öðrum sem skilja þig

AF HVERJU AÐ KOMA Á RETREAT MEÐ ÞÓRHILDI?

“Mín ástríða í lífinu er að skora á sjálfa mig og vaxa og gera lífið þannig aðeins betra og aðeins meira spennandi með hverjum deginum. Eftir að hafa uppgötvað heilmargt um sjálfa mig og hversu mikið vald við öll höfum til að gera lífið okkar betra er fátt sem ég elska meira en að fá að miðla því til annarra sem vilja vaxa og fá að fylgjast með fólki valdeflast og upplifa meiri frið og hamingju.”

Ég geri mér grein fyrir því að við getum öll verið bæði kennarar og nemendur fyrir hvert annað. Ég veit að ég er ekki með öll svörin heldur vil ég fyrst og fremst miðla af þeirri leið sem ég hef farið til þeirra sem eru spennt að feta svipaða leið.

Ég nærist af því að vera í hóp af fólki og ræða um hlutina sem raunverulega skipta máli. Mér leiðist yfirleitt yfirborðskennt spjall og vil miklu frekar detta á gott trúnó. Við erum félagsverur og við eigum að fara í gegnum lífið með stuðningi hvert frá öðru og ég veit ekki um betri stað til að gera það en í retreati. Ég hlakka til að vera með þér þar.

“Þórhildur er yndislegur kennari með góða reynslu og snillingur í að miðla þekkingu á vegu sem maður tengir við.”

FULLVALDA

“Hver vegur að heiman er vegurinn heim.”

Markmið mitt er að leiða einstaklinga að því að lifa eftir sínum sannleika í ást og hugrekki og öðlast þannig betra samband við sjálf sig og aðra í krinum sig. Með því að skoða vandamál í samböndunum okkar getum við fundið þau svæði í okkur sjálfum sem standa mest í vegi fyrir hamingju okkar. Það eina sem við getum treyst á í þessu lífi eru stöðugar breytingar og við sjálf erum eina manneskjan sem við munum fylgja okkur í gegnum þær allt okkar líf. Aðeins með því að þekkja okkur sjálf getum við skapað það líf sem við erum sannarlega spennt fyrir.

Þórhildur

12 mánada prógram

FULLVALDA KONUR 12 MÁNAÐA ÞJÁLFUN

“The bad news is you’re falling through the air, nothing to hang on to, no parachute. The good news is, there’s no ground.” — Chögyam Trungpa

Sem fullkomið framhald eftir FULLVALDA retreat þá er FULLVALDA LÍF hópstuðningur fyrir metnaðarfullar KONUR sem eru tilbúnar að taka hamingjuna í eigin hendur og skapa frábært líf eftir sínu eigin höfði.

Þú veist að þú hefur VAL og nú eru góðar líkur á að þú þekkir tilfinninguna í líkamanum þar sem þú hefur valdið, ástina og gleðina til að lifa lífinu eins og þú vilt. 

Framhaldið verður þá bara meira spennandi þar sem þú tekur ákvarðanir frá hjartanu til að skapa það líf sem þú vilt og í FULLVALDA hópnum færðu stuðninginn sem þú þarft til að lifa í ást og hugrekki! Ég vil styðja þig til að lifa þínu besta lífi eftir þínum gildum, lifandi og FULLVALDA. 

Hópurinn er fyrst og fremst stuðningur og aðhald með því að vera í hópi af konum á sömu leið í lífinu sem einkennist af kærleika og hugrekki. Tól til að dýpka andlegan skilning á þér og heiminum til að auka þrautseigju og veita þér styrk til að uppfylla þína bestu hamingju.

Hafðu samband núna til að spyrja nánar út í prógrammið og sækja um.

Love Notes

“Mér líður eins og ég sé búin að finna kjarnann í mér. Ég hef trú á því að þessir dagar hafi breytt hugsunum mínum til framtíðar. Ég mun skapa mér nýjar venjur með þeim tólum sem ég hef fengið.
Það kenndi mér að fara inn í friðinn í hjartanu mínu.”

BRÍET


“Ég er bara mega sátt með lífið. Fullvalda og veit að ég hef allt að segja hvað verður með líf mitt og hvernig ég lifi því. Frábært að hafa kynnst þessu yndislega fólki sem var með mér, það eitt og sér var upplifun út af fyrir sig.
Ég finn svo sterkt í hjarta mínu hvers ég þarfnast og að það er eingöngu í mínu valdi að gera það sem ég þarf til að verða fullvalda og frjáls í eigin skinni.”

ÞÓRA


“Mér líður mjög vel, er jarðtengd og friðsæl. Ég er mjög bjartsýn með framhaldið en gef mér tíma til að vera hugsi yfir því sem ég var að upplifa á góðan hátt.
Ég er að velja mig umfram annað. Gef mér rými til að meta það sem ég upplifi og viðbrögð.”

EDDA