ÞITT ER VALIÐ

ÞÍN HAMINGJA ER

Í ÞÍNUM HÖNDUM

Þú ert aðeins einu vali í burtu frá því að taka nýja  stefnu og upplifa besta samband sem þú getur ímyndað þér

“The quality of our relationships dictate the quality of our lives.” Esther Perel. 

Sundur og saman var stofnað af mínum einskæra og einlæga vilja til að bæta sambönd fólks með persónulegri nálgun. Það hefur margsannað sig hve mikilvægt það er fyrir hamingju fólks að vera í góðum tengslum en samt sem áður erum við mörg í mikilli flækju með samböndin okkar. Eftir að hafa fetað menntaveginn í gegnum verkfræði og hagfræði í leit að minni hilllu til að bæta hamingju í samfélaginu endaði ég á því að skapa minn eigin farveg og blanda saman öllum mínum praktíska eldmóð við andlegan áhuga á yoga og sjálfsþekkingu. Ófeimin við að deila minni eigin reynslu í þeirri sterku von um að þú munir tengja við sögu mína og finna í gegnum hana von og innblástur til að breyta þínum samböndum til hins betra. Velkomin í heiminn minn. Ég hlakka til að heyra frá þér. -Þórhildur

Hlustaðu á viðtalið:

Love Notes

"Þórhildur er yndisleg og mjög klàr á þessu sviði. Ég fékk miklu meira út úr prógramminu með henni heldur en “venjulegri” sambandsráðgjöf. Hún hjálpaði mér að opna hugan enn betur og sjá hlutina í heilbrigðara ljósi. Mér leið eins og ég gæti opnað mig strax fyrir henni í fyrsta samtali og fann aldrei fyrir skilningsleysi eða dómhörku."


SELMA


“Þórhildur er með svo góða nærveru og nær að útskýra allt á svo auðmjúkan og raunverulegan hátt. Það er aldrei verið að dæma fyrir skrítnar spurningar og það er til svar við öllu.”

Mér leið virkilega vel að tala við hana og treysta henni fyrir óöryggi mínu. 

Dásamleg, skemmtileg, skilningsrík. Alveg sama hvað ég vildi ræða þá var hún ALLTAF tilbúin til að hlusta og ræða það sem þurfti að ræða.

ÍRENA DIS


"Mæli heils hugar með stuðningi Þórhildar sem einkenndist allan tímann af hlýju, ástríðu, virðingu og kærleik sem er ómetanlegt í ferli sem þessu. Hún færir manni ekki alltaf svörin sem maður vill í fyrstu en svo sér maður að þetta eru einmitt svörin sem maður þarf á að halda og leiða mann á endanum í átt að innri sannleika."

STEINUNN


ÞJÓNUSTAN MÍN

ÞJÓNUSTAN MÍN


STÓRKOSTLEG SAMBÖND

Paranámskeið á netinu

Fjögurra vikna prógram til að læra hvernig má gera gott samband enn betra eða blása lífi í glóðina ef sambandið hefur setið á hakanum. Þegar þið viljið bæta sambandið ykkar en pararáðgjöf er ekki heppilegur kostur. Á fjórum vikum leiði ég ykkur í gegnum fræðslu, verkefni og áskoranir sem láta ykkur uppgötva ykkur sjálf og hvort annað á nýjan máta. Á skemmtilegan og hlutlausan hátt heima í stofu fáið þið fulla verkfærakistu til að takast á við sambandið ykkar í nýju ljósi, saman og í sitthvoru lagi.

Ég er hér til að veita þér innblástur og leiðarvísi að því að skapa þitt besta líf og besta samband sem þú getur ímyndað þér.

Þú ert aðeins einu vali í burtu frá því að taka nýja stefnu og upplifa besta samband sem þú getur ímyndað þér.